Jón Bjarni Ólafsson línumaðurinn öflugi er ekki í leikmannahóp FH-inga í kvöld gegn KA samkvæmt heimildum Handkastsins. Jón Bjarni glímir við meiðsli og ferðaðist ekki með liðinu norður í morgun. Heil umferð fer fram í Olís-deild karla þegar næst síðasta umferðin verður leikin en FH er í toppbaráttu í deildinni, einu stigi á eftir toppliði Vals fyrir síðustu tvær umferðir Olís-deildarinnar. Jón Bjarni meiddist á ökkla í bikarleiknum gegn Haukum á dögunum og hefur verið að glíma við meiðsli. síðan þá. Jón Bjarni spilaði aðeins fyrstu 10 mínúturnar í leik FH og Aftureldingar í síðustu umferð en var þá með fjögur mörk úr jafn mörgum skotum. Eins og Handkastið greindi frá kölluðu FH-ingar Gunnar Kára Bragason tilbaka úr láni fyrir lok félagskiptagluggans og er honum ætlað að fylla skarðið með Ágústi Birgissyni. Það er vonandi fyrir FH-inga að Jón Bjarni jafni sig af meiðslunum fyrir úrslitakeppnina enda mjög mikilvægur fyrir FH. Í síðasta þætti af Handkastinu var því vellt upp hvort Snorri Steinn Guðjónsson myndi velja Jón Bjarna í hópinn fyrir leikina gegn Svíðþjóð. Snorri Steinn tilkynnti hópinn fyrir verkefnið gegn Svíþjóð í hádeginu í dag og þar var enginn Jón Bjarni. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.