Íslenska kvennalandsliðið tapaði í gær með níu mörkum gegn Svartfjallalandi ytra 33-24 eftir að hafa verið í jafnri stöðu í hálfleik 13-13. Í stöðunni 20-18 fyrir Íslandi kom slæmur kafli sem Svartfellingar nýttu sér fullkomlega og skoruðu níu mörk í röð. Arnar Pétursson þjálfari íslenska landsliðsins var í viðtali við RÚV í gær eftir leikinn. Þar sagði hann að í 40 mínútur hafi liðið spilað virkilega vel en svo hafi slæmi kaflinn verið mjög slæmur. ,,Við förum illa með boltann og færi og erum bara í töluvert miklu basli sem við náum okkur aldrei út úr. Þar af leiðandi töpuðum við þessu of stórt miðað við hversu mikið stelpurnar lögðu í þetta,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson í samtali við RÚV í gærkvöldi. ,,Vissulega hefðum við vilja gera betur síðustu 20 mínúturnar,“ sagði Arnar sem segist heilt yfir vera ánægður með frammistöðuna hjá íslenska landsliðinu í þessum tveimur leikjum leikjum gegn Svartfjallalandi en íslenska liðið vann Svartfjallaland óvænt á miðvikudaginn með einu marki á Ásvöllum. Arnar segir að liðið hafi átt 100 góðar mínútur af þessum 120 mínútum sem liðið spilaði gegn mjög sterku liði Svartfjallalands. ,,Við erum með mjög ungt lið, ungan hóp. Þær eiga eftir að lenda í svipuðum aðstæðum aftur og þá eru þær búnar að upplifa þetta og þá tökum við það með okkur.. Við erum eftir þennan glugga búin að koma okkur í þá stöðu að þetta er í okkar höndum. Möguleikarnir eru klárlega til staðar. Þessi sigur á miðvikudaginn kemur okkur aftur inn í þennan möguleika á að komast á þetta stórmót sem við höfum stefnt að," sagði Arnar en liðið er nú með tvö stig eftir fjórar umferðir en liðið á eftir að spila gegn Færeyjum og Portúgal sem unnu sitthvoran leik þjóðanna í vikunni og eru báðar þjóðirnar með fjögur stig. Svartfjallaland er á toppi riðilsins með sex stig. Næstu leikir Íslands í undanriðlinum verða leiknir 8. og 12. apríl fyrst gegn Færeyjum í Færeyjum og svo heima gegn Portúgal. EM kvenna verður haldið í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi í desember 2026.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.