Ekki tapað heimaleik í 1000 daga
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP

Dönsku meistararnir í Álaborg eru að skrifa söguna í dönsku úrvalsdeildinni en liðið hefur verið ósigrandi í dönsku deildar- og úrslitakeppninni í rúmlega 1000 daga. Á föstudaginn var, 6.mars voru liðnir 1000 dagar frá síðasta tapi Álaborgar á heimavelli í keppnum heima fyrir.

Það tap kom gegn GOG í oddaleik úrslitaeinvígisins um danska meistaratitilinn tímabilið 2022/2023 en GOG gerði sér lítið fyrir og vann tvo útileiki í röð gegn Álaborg en Álaborg vann heimaleik GOG hinsvegar. Það dugði þó ekki til og GOG varð danskur meistari það tímabil.

Síðasta tap Álaborgar á heimavelli fór fram 10. júní árið 2023.

Þá hefur Álaborg náð öðrum merkilegum áfanga en liðið hefur farið í gegnum heilt ár í deildinni heima fyrir án þess að tapa stigum.

Álaborg á tvo heimaleiki eftir í deildinni áður en úrslitakeppnin fer af stað. Fyrst mætir liðið Mors og síðan Ringsted og geta þeir því haldið áfram að skrifa söguna í næstu heimaleikjum.

Ótrúlegt afrek sem seint verður leikið eftir myndi maður halda.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top