Topplið Vals í Olís-deild karla fengu skell gegn Íslandsmeisturunum í Fram í síðustu umferð en Framarar mættu í Valsheimilið og unnu sannfærandi átta marka sigur 35-27 eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik 10-16. Rætt var um frammistöðu Vals í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins fyrir helgi en 21.umferðin í Olís-deild karla fer öll fram í kvöld og síðan lýkur deildarkeppninni næstkomandi fimmtudagskvöld. Stymmi klippari var spurður að því hvað hafi gerst hjá Val í leiknum gegn Fram? ,,Það varð hrun. Það stóð ekki steinn við steini hjá Val. Við höfum séð mikið af Val í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans í vetur og það eru ekki nema 3-4 vikur síðan þeir mættu Haukum og þá sáum við annað afhroð hjá Val. Þeir eiga þetta til, mér finnst þetta nýtilkomið hjá Val hvað þeir geta dottið ofboðslega langt niður og maður sá það á fyrstu mínútu leiksins hversu Framarar voru miklu gíraðri í þetta og það var fljótt kominn pirringur í Valsarana. Einhverjir Valsarar höfðu verið að minnast á meiðsli í þeirra herbúðum en það eru líka meiðsli hjá Fram og ég held að margir leikmenn í deildinni séu hnjaskaðir og lemstraðir," sagði Stymmi klippari meðal annars um frammistöðu Vals í leiknum. Þrátt fyrir tapið er Valur enn á toppi deildarinnar með 30 stig en FH eru í 2.sætinu með 29 stig og Haukar eru í því þriðja með 28 stig. Valur fær HK í heimsókn í kvöld og heimsækir síðan ÍBV heim á fimmtudaginn. Vinni Valur tvo síðustu leiki sína er ljóst að þeir verða deildarmeistarar tímabilið 2025/2026.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.