Frederik Arnoldsen tvíburabróðir Thomas Arnoldsen leikur ekki meira með TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hinn bróðirinn, Thomas Arnoldsen leikur með Álaborg. Frederik Arnoldsen meiddist á æfingu hjá Holstebro í síðustu viku og hefur gengist undir aðgerð sem veldur því að hann getur ekki leikið meira með Holstebro á tímabilinu en þjálfari Holstebro er Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands. Með Holstebro leikur Jóhannes Berg Andrason. TTH Holstebro er í 7.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 24 stig þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Liðið hefur gott sem tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum en liðið á eftir að leika gegn Bjerringbro/Silkeborg, Ringsted og Skanderborg. Deildarkeppnin í Danmörku lýkur 28. mars en ein umferð er eftir af deildinni áður en haldið er í landsleikjapásu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.