Þýski landsliðsmaðurinn og vinstri hornamaðurinn í liði Kiel Rune Dahmke hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til eins árs eða út leiktíðina 2027. Rune Dahmke sem er fæddur árið 1993 gekk í raðir THW Kiel 15 ára gamall og hefur verið fastamaður í aðalliðinu síðan 2014. Hann hefur unnið Meistaradeildina (2020), EHF-bikarinn (2019), fjóra þýska meistaratitla, fjóra bikarmeistaratitla og sex Ofurbikara með félaginu. Hann var fyrir tímabilið gerður að fyrirliða liðsins eftir að línumaðurinn Patrick Wiencek lagði skóna á hilluna. Dahmke er þriðji leikmaður Kiel sem framlengir samningi sínum við félagið á stuttum tíma en fyrir skemmstu tilkynnti félagið að þeir Domagoj Duvnjak og Hendrik Pekeler hafi einnig framlengt samningum sínum við félagið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.