Átta leikir fara fram í Evrópudeild karla í kvöld þegar lokaumferðin í milliriðlum Evrópudeildarinnar verður leikin. Hannover Burgdorf og Kiel eru einu liðin sem hafa nú þegar unnið sér sæti í 8-liða úrslit keppninnar en mikil spenna er í tveimur riðlum um efsta sætið í riðlunum. Vardar og Melsungen mætast en bæði lið eru með sex stig í sínum riðli. Sigurvegarinn úr þeim leik fer beint í 8-liða úrslitin. Í milliriðli tvö eru þrjú lið með sex stig, Skanderborg, Elverum og Porto en Skanderborg mætir Porto á meðan Elverum mætir Granollers sem er á botninum með tvö stig. Hér að neðan má sjá lista yfir 10 markahæstu leikmönnum Evrópudeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.