Göppingen hafði betur gegn Eisenach með þremur mörkum 26-23 í þýsku Bundesligunni á heimavelli í gærkvöldi. Um var að ræða síðasta leikinn í 24.umferð deildarinnar. Göppingen var 16-13 yfir í hálfleik en Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark í leiknum. Elias Newel var markahæstur í liði Göppingen með sex mörk en hjá gestunum í Eisenach var Felix Aellen með sjö mörk. Þetta var annar sigur liðsins í röð en Göppingen er með 20 stig í í 10 sæti deildarinnar en Eisenach er í 14.sæti deildarinnar með 16 stig. Göppingen fer í heimsókn til Lemgo í næstu umferð en Lemgo er í 4.sæti deildarinnar með 34 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.