Þeir sem eru með lyklana eru drengir á öðru ári í menntaskóla
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Freyr Aronsson fór á kostum í sigri Hauka gegn Selfossi í næst síðustu umferð Olís-deildar karla sem fór fram síðastliðið mánudagskvöld. Freyr skoraði 13 mörk úr 15 skotum þar af sjö mörk úr sjö vítaskotum.

Það vakti hinsvegar athygli margra að hann var ekki í Cell-tech liði 21.umferðar hér á Handkastinu þrátt fyrir þessa frammistöðu.

,,Það er galið, ég barðist og barðist fyrir því að fá hann í lið umferðarinnar," sagði Stymmi klippari meðal annars í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Arnar Daði útskýrði hinsvegar afhverju Freyr var ekki í liði umferðarinnar að þessu sinni. Það var vegna þess að jafnaldrar hans, Ómar Darri Sigurgeirsson hjá FH og Gunnar Róbertsson hjá Val áttu ekki síðri leik.

,,Talandi um Frey, ræðuna bara aðeins Cell tech kreatín lið umferðarinnar því það tengist umræðunni um Frey. Í vinstri skyttunni er Ómar Darri Sigurgeirsson og á miðjunni er Gunnar Róbertsson, þeir ásamt Frey eru allir fæddir árið 2008. Þetta er næst síðasta umferðin í Olís-deild karla, það er mikið undir hjá flestum liðum og þeir taka yfir leikinn hjá FH, Val og Haukum. Þetta eru risarnir í íslenskum handbolta og þeir sem eru með lyklana eru drengir á öðru ári í menntaskóla.”

,,Þetta er það sem mér finnst fallegt við deildina okkar, þetta er það sem við höfum fram yfir aðra íþrótt hér á Íslandi sem við erum oft að pönkast í. Það er ekki verið að kaupa einhverjar kennitölur sem stoppa í eitt ár og fara síðan. Við finnum bara næstu leikmenn. Garðar Ingi Sindrason er á leið í þýsku úrvalsdeildina frá FH, Baldur og Andri Erlings eru á leiðinni út og hverjir eru að fara taka við? Brynjar Narfi verður líklega í stærra hlutverki hjá FH á næsta tímabili, fæddur árið 2010. Það kemur alltaf næsta kynslóð af ungum peyjum," bætti Stymmi við og velti fyrir sér hverjir væru næstir að fara út í atvinnumennsku.

Lokaumferðin í Olís-deild karla fer fram í kvöld þegar heil umferð verður leikin og hefjast allir leikirnir klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top