Meistaradeildin: Barcelona með flugeldasýningu og önnur úrslit gærkvöldsins
(Ronny HARTMANN / AFP)

Fjórir leikir fóru fram í B riðlinum í síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Áttum við Íslendingar X í eldínunni.

Janus Daði Smárason og lið hans Pick Szeged gerði 30-30 jafntefli við Orlen Wisla Plock. Janus komst ekki á blað í leiknum.

SC Magdeburg steinlágu í París gegn PSG, 34-26. Elvar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk, Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 1 en Ómar Ingi Magnússon spilaði ekki með liðinu í kvöld og ekki heldur Felix Claar.

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barca kjöldrógu Eurofarm Pelister 47-27. Viktor Gísli varði 6 bolta og var með rétt tæplega 30% hlutfallsmarkvörslu.

Þá unnu GOG 33-28 sigur á Zagreb þar sem Frederik Bjerre var markahæstur í danska liðinu með 9 mörk og Georgíu maðurinn geðugi Giorgi Tskhovrebadze vara markahæstur fyrir Zagreb með 10 mörk.

Þessi úrslit þýða að Magdeburg sem lengi vel voru taplausir í keppninni falla niður í 2. sæti riðilins og Barca hneppir 1. sætið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top