Haukar tóku á móti ÍBV í fyrsta leik 19.umferðar Olís deildar kvenna á Ásvöllum í dag. Liðin voru í öðru og þriðja sæti deildinnar fyrir leikinn og voru bæðin búin að vera á miklu flugi eftir áramót. Haukar byrjuðu leikinn feikilega vel og áttu ÍBV fá svör við varnarleik Haukanna og voru einungis búnar að skora 1 mark eftir þrettán mínútna leik og Haukar komnar með fjögurra marka forskot. ÍBV náði aðeins að laga sóknarleikinn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og var staðan, 15-12, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Haukar byrjuðu síðari hálfleikinn líkt og þann fyrri og náðu aftur góðu forskoti og voru á tímabili komnar sex mörkum yfir. ÍBV náði, líkt og í fyrri hálfleik, að minnka muninn og voru tveim mörkum undir þegar tvær mínútur voru eftir. ÍBV náði þó ekki að minnka muninn meira og tveggja marka sigur Hauka staðreynd, 25-23. Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka með 7 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir markahæst með 6 mörk. Sara Sif Helgadóttir var frábær í marki Hauka og varði 14 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.