Íslendingar létu til sín taka víða um Evrópu
Beautiful Sports / Orange Pictures / AFP

Nokkrir íslenskir handknattleiksmenn komu við sögu með liðum sínum í Evrópu í gærkvöldi og víðar um álfuna, þar sem markaskorun, stoðsendingar og mikilvæg stig unnust.

Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk þegar Chambéry vann Dijon 34-30 á útivelli í efstu deild í Frakklandi.

Í austurrísku úrvalsdeildinni skoraði Tumi Steinn Rúnarsson tvö mörk þegar Alpla Hard tapaði óvænt gegn Jags 30-26. Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað í markaskorun. Alpla Hard er í 2. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 18 leiki jafn mörg stig og Voslauer.

Í Noregi bætti Tryggvi Þórisson við einu marki þegar Elverum vann öruggan sigur á Bækkelaget, 33:26, á heimavelli. Elverum er með sex stiga forskot á toppi norsku úrvalsdeildarinnar þegar aðeins sex umferðir eru eftir, þó Kolstad eigi leik til góða. 

Í þýsku 2. deildinni skoraði Tjörvi Týr Gíslason eitt mark fyrir HC Oppenweiler/Backnang sem tapaði fyrir Eintacht Hagen 42-27. Staða liðsins er áfram erfið því liðið situr á botni deildarinnar með aðeins tvö stig. Á sama tíma tapaði Elmar Erlingsson og félagar í Nordhorn-Lingen með ellefu mörkum gegn Potsdam 34-23. Elmar skoraði eitt mark í leiknum og gaf fjórar stoðsendingar. Erfiðlega hefur gengið hjá Nordhorn síðustu vikur.

Stiven Tobar Valencia og félagar hans í Benfica komust í átta liða úrslit portúgölsku bikarkeppninnar í gærkvöldi þegar þeir höfðu betur gegn Carvalhos 36-28 á útivelli. Stiven Tobar skoraði þrjú mörk í leiknum en hann er í landsliðshópi Íslands sem kemur saman eftir helgi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top