Góðar fréttir bárust úr herbúðum norska handboltans fyrir helgi þegar ljóst varð að Camilla Herrem er laus við brjóstakrabbamein eftir erfiða baráttu sem hófst síðasta sumar. Herrem, sem er 39 ára gömul og einn reynslumesti hornamaður Noregs, fékk greininguna í fyrra en lét það ekki stöðva sig lengi. Hún mætti aftur á parketið með Sola HK strax í byrjun september rétt rúmum tveimur mánuðum eftir að hún greindi frá veikindunum. Í samtali við Nettavisen segir Herrem að staðan í dag sé einfaldlega eins góð og hægt er að vona. „Það gengur allt mjög vel. Ég er í frábæru formi, handboltinn gengur vel og fjölskyldunni líður vel. Ég er krabbameinslaus, eins og það er kallað. Ég fór í skoðanir eftir aðgerðina og læknarnir fundu ekkert nýtt,“ sagði hún. Herrem viðurkennir þó að það hafi verið skrítið að segja þetta upphátt. „Mér finnst ég eiginlega vera að „jinxa“ þetta þegar ég segi það, en ég hef í raun vitað þetta síðan í desember. Mér hefur liðið mjög vel og allt gengið vel síðan ég fór í aðgerð,“ sagði norski hornamaðurinn. Það er því óhætt að segja að þetta séu fréttir sem gleðja allan handboltaheiminn – og líklega fáa meira en Herrem sjálfa.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.