Stjarnan tapaði enn einum leiknum sínum í Olís-deild karla á fimmtudagskvöldið þegar Íslandsmeistarar Fram komu í heimsókn. Lokatölur 26-24 fram í vil eftir að Stjarnan hafi verið 14-10 yfir í hálfleik. Stjarnan tapaði öllum ellefu leikjum sínum í seinni umferðinni og enduðu í 11.sæti deildarinnar með 10 stig. Rætt var um gengi Stjörnunnar í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Þetta er ótrúlegt að þeir hafi ekki náð í fleiri stig í seinni umferðinni og að þeir hafi ekki náð í stig í seinni umferðinni er ótrúlegt. Í rauninni er það rannsóknarefni og það þyrfti að rýna í þessa ellefu leiki og sjá hvað fór á mis hjá liðinu. Ég held að enginn geti afsakað sig eitt eða neitt í Garðabænum. Fyrst og fremst finnst mér að leikmennirnir megi skammast sín fyrir sína frammistöðu," sagði Einar Ingi Hrafnsson sem var gestur í Handkastinu. Stjarnan fer í svokallað, Séffa-umspil sem tekið var upp á síðustu leiktíð þar sem 11.sætið fer í umspil með liðunum í Grill66-deildinni. ,,Grótta fór í Séffa-umspilið í fyrra í fyrsta skiptið og tapar. Þeir voru í neikvæðum spíral í aðdraganda umspilsins, þó ekki svona neikvæðum eins og Stjarnan er í núna. Okkur fannst það hafa áhrif á Gróttu í umspilinu í fyrra. Varðandi sjálfstraust og Selfoss fer pressulaust inn í það umspil," sagði Arnar Daði og spurði Stemma Klippara hvernig hann sér fyrir sér Stjörnuna mæta í Séffa-umspilið. ,,Auðvitað held ég að Stjarnan haldi sér uppi á endanum og þetta verði allt í góðu og fá nokkrar dúllur í kassann ef það myndast einhver stemning í þessu úrslitaeinvígi sem væri líklegast á milli Stjörnunnar og Gróttu. En það sem setur Stjörnuna í alvöru vandamál núna er að þeir geta ekki farið að undirbúa næsta tímabil. Núna eru önnur lið mögulega farin að geta talað við leikmenn og reyna stækka hópana. Þú getur varla verið að reyna fá leikmenn í Garðabæinn ekki vitandi í hvaða deild þú verður í.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.