Þrátt fyrir að Ómar Ingi Magnússon og Harpa Brynjarsdóttir hafi eignast sitt þriðja barn á fimmtudaginn var Ómar Ingi í eldlínunni með liðsfélögum sínum í Magdeburg í dag þegar liðið heimsótti Arnór Þór Gunnarsson og félaga í Bergischer hér í þýsku úrvalsdeildinni. Liðin eru í baráttu á sitthvorum enda töflunnar en það var ekki að sjá í leiknum sjálfan því jafnræði var með á liðunum nær allan leikinn. Bergischer komst í 7-4 en staðan var jöfn í hálfleik 11-11. Liðin skiptust á að vera með forskot í seinni hálfleik en úr stöðunni 23-22 fyrir Bergischer ákváðu Ómar Ingi Magnússon og Felix Claar að taka leikinn í sínar hendur. Þeir félagar skoruðu fimm mörk samtals á lokamínútum leiksins meðan Bergischer skoraði tvö og Magdeburg fór með sigur af hólmi 25-27. ,,Við áttum í erfiðleikum í dag. En í seinni hálfleik var allt aðeins betra og við bættum okkur um tíu eða fimmtán prósent. Að lokum komum við með meiri orku og það var lykillinn," sagði Ómar Ingi Magnússon, stjarna Magdeburg, á vefsíðu félagsins eftir leikinn. Felix Claar var markahæstur í liði Magdeburg með tíu mörk og Ómar Ingi Magnússon kom næstur með níu mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað fyrir Magdeburg. Framundan er landsliðsverkefni en þar fær Ómar Ingi kærkomið frí og smá fæðingarorlof en hann verður ekki með íslenska landsliðinu í æfingaleikjunum gegn Svíum sem fara fram hér á landi á fimmtudag og laugardag í næstu viku. Önnur úrslit: Lemgo - Göppingen 27-30 - Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað
Leipzig - Stuttgart 29-29 - Blær Hinriksson skoraði tvö mörk fyrir Leipzig
Füchse Berlin - Erlangen 45-29 - Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Erlangen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.