Við settum okkur í samband við Evu Hrund Harðardóttir sem var í febrúar síðastliðnum ráðin nýr þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking sem leikur í Grill66-deildinni. Hún tekur við liðinu í sumar. Við lögðum fyrir hana nokkrar laufléttar spurningar um nýja starfið. 1) Þú varst ráðin þjálfari mfl kvk Víkings þann 16 febrúar síðastliðinn og tekur við í sumar. Til hamingju með starfið. Átti þetta sér langan aðdraganda? Takk kærlega fyrir. Þetta gekk frekar hratt fyrir sig. Ég fór á fund með stjórn handknattleiksdeildar og ég tók mér 2-3 daga í að meta stöðuna og taka ákvörðunina. Ég var í raun mjög ákveðin að fara ekki þessa braut, önnur félög hafa sýnt mér áhuga sem ég var búin að afþakka en þau hjá Víking náðu til mín. Ég hef auðvitað unnið fyrir félagið í vetur og veit að hverju ég geng þar og það sem heillaði mig mest er að stjórn er með skýra sýn fyrir framtíðina. Ég er að koma inn í virkilega metnaðarfullt umhverfi þar sem stjórn hefur sett sér háleit markmið, m.a. er stefnt að því að endurvekja þá stemningu sem var í kringum handboltann hjá Víking hér á árum áður. 2) Kom þetta þér á óvart að félagið skyldi leita til þín? Já í raun, ég hafði ekki gefið neitt færi á mér eða gefið í skyn að ég hefði áhuga á að feta þessa braut. Ég hef auðvitað verið að þjálfa í mörg ár en alltaf bara einbeitt mér að því að sinna mínu eins vel og ég get hverju sinni. Ég er mjög ánægð með ákvörðunina og er full tilhlökkunar. 3) Hvernig er staðan á leikmannahópnum fyrir næsta tímabil? Heldurðu flestum leikmönnum eða verða einhverjar breytingar á hópnum? Leikmannahópurinn verður með aðeins breyttri mynd. Eldri og reyndari leikmenn sem hafa verið í lykilhlutverkum hjá okkur síðustu ár eru að stíga til hliðar svo nú fá aðrir leikmenn sviðsljósið og stærri hlutverk. Við erum eftir sem áður með flottan hóp sem við munum byggja upp í kringum og efla. 4) Nú varstu að þjálfa 4. flokk kvenna í vetur. Muntu þjálfa þann flokk áfram samhliða meistaraflokksþjálfun? Eru einhverjar stelpur þar sem gætu farið að banka á dyrnar hjá meistaraflokki á næsta ári/árum? Ég hef verið að vinna með frábærum stúlkum í 4. flokki í vetur, ótrúlega efnilegur hópur þar á ferð sem á framtíðina fyrir sér á handboltavellinum. Ég mun stíga til hliðar úr því þjálfarateymi eftir sumarið en þær vita að ég hef auga með þeim öllum og sé fyrir mér að einhverjar þeirra taki sín fyrstu skref með meistaraflokki strax í haust með einhverjum hætti. Það er mikill uppgangur í yngri flokka starfi Víkings, bæði karla og kvenna megin. Iðkendum hefur fjölgað um mörg hundruð prósent á undanförnum árum og sjáum við fyrir okkur að á næstu 2-3 árum eigum við stóra hópa iðkenda í öllum flokkum. Því miður hefur verið smá bil frá 4. flokki upp í meistaraflokk og því hafa ekki nægilega margir uppaldir leikmenn skilað sér upp í meistaraflokkana en nú erum við farin að sjá fyrir endann á því og lítum björtum augum til framtíðar. 5) Hvernig værir þú til að sjá mótafyrirkomulagið í kvennabolta á Íslandi í meistaraflokk? Ein deild eða tvær? Eða fjölga upp í 10 liða efstu deild? Ég er algjörlega fylgjandi því að við þurfum að fjölga liðum í Olís-deild kvenna. Ég hef þó ekki enn myndað mér skoðun á því hvort það sé heppilegast að fjölga einungis upp í 10 lið eða hvort við við ættum að taka enn stærra skref og fjölga enn meira.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.