Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf fjórar stoðsendingar er Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe vann bronsverðlaun í þýska bikarnum í dag. Blomberg-Lippe vann Thuringer 29-27 í Porsche Arena í dag. Í úrslitaleiknum hafði síðan Borussia Dortmund betur gegn HSG Bensheim/Auerbach með fimm mörkum 30-25. Elín Rósa Magnúsdóttir komst ekki á blað hjá Blomberg-Lippe í leiknum í dag en hún gaf sex stoðsendingar. Andrea Jacobsen skoraði eitt mark. jafnt var í hálfleik 13-13 en Thuringer var meira og minna yfir allan fyrri hálfleikinn. Liðin skiptust á að vera með forskot í seinni hálfleiknum en Blomberg-Lippe reyndist sterkari aðilinn síðustu tíu mínútur leiksins og náðu 5-0 kafla eftir að hafa verið 24-22 undir. Um var að ræða fjögur efstu liðin í þýsku úrvalsdeildinni sem tóku þátt í bikarhelginni en Dortmund er á toppi deildarinnar með 31 stig en Blomberg-Lippe eru í 2.sætinu með 30 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.