Íslenska þríeykið leikur um bronsið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslendingaliðið HSG Blomberg-Lippe leikur um 3. sætið í þýsku bikarkeppninni í dag eftir þriggja marka tap gegn Borussia Dortmund 35-32 í gærkvöldi.

Af íslensku leikmönnunum var Díana Dögg Magnúsdóttir markahæst með þrjú mörk. Hún skilaði einnig fimm stoðsendingum. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði eitt mark og gaf sex stoðsendingar og Andrea Jacobsen komst ekki á blað í leiknum en gaf eina stoðsendingu.

Dortmund var 17-15 yfir í hálfleik og náði mest sex marka forystu í seinni hálfleik sem Blomberg-Lippe náði aldrei að brúa. Þetta er annað árið í röð sem Blomberg-Lippe fellur úr leik í undanúrslitum keppninnar.

Blomberg-Lippe mætir Thüringer HC í leiknum um bronsverðlaunin í dag klukkan 13:00. Að honum loknum eigast við Dortmund og HSG Bensheim/Auerbach í úrslitaleik um bikarinn. Bensheim/Auerbach tryggði sér sæti í úrslitum eftir tveggja marka sigur 36-34 sigur á Thüringer HC eftir vítakeppni í hinum undanúrslitaleiknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top