Landsliðskonan, Dana Björg Guðmundsdóttir leikmaður Volda í norsku 1.deildinni hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Volda í norsku B-deildinni en hún gengur í raðir úrvalsdeildarliðsins Larvik í sumar. Dana Björg varð fyrir því óláni að meiðast á ökkla í sigri Volda gegn Glassverket en Volda vann leikinn með tíu mörkum 33-23 og skoraði Dana Björg þrjú mörk í leiknum áður en hún meiddist. Dana Björg birti færslu á Instagram síðu sinni þar sem hún liggur á sjúkrarúmi. „Ekki alveg svona sem síðasta tímabilið mitt í Volda átti að enda. Allt of snöggur endir á þessum 4 árum í Volda-treyjunni, þegar liðbandið í vinstri ökklanum slitnaði í leiknum í gær (sunnudag). Takk fyrir öll fallegu skilaboðin sem ég hef nú þegar fengið. Nú tekur við smá hvíld áður en endurhæfingin hefst af fullum krafti," skrifaði Dana Björg á norsku við færslu sína. Um væri að ræða slæm tíðindi einnig fyrir íslenska landsliðið fyrir síðustu leiki þess í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í apríl þegar liðið mætir Færeyjum og Portúgal í gríðarlega mikilvægum leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.