Fékk heilablóðfall stuttu eftir brottreksturinn frá Berlín
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þýski handknattleiksþjálfarinn Jaron Siewert hefur greint frá því að hann hafi fengið sitt annað heilablóðfall í október á síðasta ári, aðeins 31 árs að aldri. Stuttu eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Füchse Berlín

Jaron Siewert sem gerði Füchse Berlin að Þýskalandsmeisturum í fyrsta skipti í sögu félagsins á síðustu leiktíð opnaði sig um málið í viðtali við Dyn þar sem hann lýsir erfiðu tímabili eftir að hann var látinn fara frá félaginu snemma á þessu tímabili. Um tveimur mánuðum eftir brotthvarfið fékk hann annað heilablóðfall. 

,,Ég var algjörlega niðurbrotinn og fór að efast um allt,“ sagði Siewert um áfallið.  Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann lenti í slíku áfalli, en hann fékk einnig heilablóðfall árið 2022.

Lyf talin líkleg orsök – ekki streita

Að sögn lækna var streita ekki talin orsök seinna áfallsins. Þess í stað er talið að blóðþynnandi lyf, sem Siewert hafði fengið eftir fyrra áfallið, hafi spilað stórt hlutverk. Þetta kom mörgum á óvart, enda hefði verið eðlilegra að tengja slíkt við álag í starfi eða erfiða tíma í kringum brottrekstur hans.

Óvænt brotthvarf úr starfi

Siewert var látinn fara frá Füchse Berlin í september 2025, ásamt íþróttastjóranum Stefan Kretzschmar, þrátt fyrir að samningar þeirra væru enn í gildi.  Athygli vakti að þetta gerðist þrátt fyrir að hann hefði stuttu áður samþykkt nýjan samning við félagið. 

Danski þjálfarinn, Nicolej Krickau tók við liðinu í kjölfarið og varð einnig íþróttastjóri félagsins og tók við því starfi af Stefan Kretzschmar.

Vill snúa aftur á hliðarlínuna

Þrátt fyrir þessi alvarlegu áföll segist Siewert nú vera tilbúinn að snúa aftur til þjálfunar. Hann hefur átt í viðræðum við nokkur félög, en þær viðræður fóru á ís eftir seinna heilablóðfallið. „Plan A er að verða aftur aðalþjálfari og standa á hliðarlínunni,“ sagði Siewert. 

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top