ÍR verður fyrir mikilli blóðtöku
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Kvennalið ÍR í Olís-deildinni hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku en Vaka Líf Kristinsdóttir leikur ekki meira með liðinu á þessu tímabilinu og ólíklegt þykir að hún leiki meira á þessu almanaksári.

Vaka Líf varð fyrir því óláni að slíta krossband í æfingaleik hjá ÍR gegn Grill66-deildarliði FH í landsliðspásunni. Vaka Líf var að þeim sökum ekki með ÍR-liðinu í sigri liðsins gegn KA/Þór í 19.umferð Olís-deildarinnar um helgina.

Grétar Áki Andersen staðfesti tíðindin í samtali við Handkastið þar sem hann var spurður út í fjarveru Vöku Lífar.

Um er að ræða hrikalega slæm tíðindi fyrir ÍR sem Vaka Líf hefur leikið stórt hlutverk með liðinu undanfarin tímabil og þá sérstaklega í vetur. Hún er næst markahæsti leikmaður ÍR á tímabilinu með 81 mörk, 103 mörkum færra en Sara Dögg Hjaltadóttir.

ÍR er í 4.sæti Olís-deildar kvenna með 22 stig og eru í harðri baráttu við Hauka um 3.sætið en Haukar eru með stigi meira. ÍR fer til Vestmannaeyja á miðvikudaginn og mæta þar ÍBV og mæta síðan Selfossi í lokaumferðinni á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top