Það verður líf og fjör í Smáralind síðdegis í dag þegar Strákarnir okkar í íslenska karlalandsliðið mæta og gefst stuðningsmönnum kostur á að hitta leikmennina, taka myndir og næla sér í eiginhandaráritanir frá hetjunum okkar. Íslenska landsliðið er í fullum undirbúningi hér á landi fyrir tvo æfingaleiki gegn sænska landsliðinu sem fara fram á fimmtudagskvöld og seinni partinn á laugardag. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi viðureignum við Svía, en ljóst er að áhuginn er gríðarlegur. Þegar er orðið uppselt á leik liðanna í Kaplakriki á laugardaginn klukkan 17:00, en aðeins örfáir miðar eru eftir á fyrri leikinn sem fram fer í Hlíðarendi á fimmtudagskvöld klukkan 19:30. Landsliðið kemur inn í verkefnið með sjálfstraustið í lagi eftir frábæran árangur á Evrópumótinu í janúar, þar sem liðið hafnaði í 4. sæti sem er besti árangur íslenska landsliðið í 16 ár. Þar ber hæst eftirminnilegan sigur á Svíum í Malmö, þar sem íslenska liðið vann átta marka sigur. Það má því búast við hörkuleikjum, enda koma Svíar til leiks með hefndarhug eftir tapið á heimavelli. Stemningin er þegar farin að magnast og ljóst að stuðningsmenn ætla að fjölmenna og styðja strákana okkar í þessum mikilvægu verkefnum. Viðburðurinn í Smáralind hefst klukkan 16:30 í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.