Ola Lindgren þjálfari finnska landsliðsins hefur þurft að gera nokkrar breytingar á landsliðshópi sínum sem mætir Svartfjallalandi í tveimur leikjum í forkeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson leikmaður Fram er einn af fjórum leikmönnum finnska landsliðsins sem hefur þurft að draga sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Þorsteinn Gauti hefur ekkert leikið með Fram í Olís-deild karla síðustu vikur. Þorsteinn lék síðast með Fram gegn KA í upphafi febrúar mánaðar en Fram endaði í 7.sæti Olís-deildar karla og er á leið í úrslitakeppnina sem hefst í næstu viku. Finnland og Svartfjalland mætast 19.mars í Finnlandi og svo aftur í Svartfjallalandi 22.mars.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.