ÍR liðið í heild að vaxa – Geta byggt á þessu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Farið var yfir sigur ÍR gegn KA/Þór í 19.umferð Olís-deildar kvenna sem fram fór um helgina í nýjasta þætti Handboltahallarinnar sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

ÍR vann fjögurra marka sigur á KA/Þór 32-28 á heimavelli þar sem Sara Dögg Hjaltadóttir fór á kostum og skoraði tólf mörk. Matthildur Lilja Jónsdóttir skoraði sex mörk.

Rakel Dögg Bragadóttir var gestur í Handboltahöllinni og hún sagði ÍR liðið hafa vaxið sem heild í vetur og geta byggt ofan á þessa frammistöðu fyrir næsta tímabil.

,,Þær geta alveg gert hörku hluti í úrslitakeppninni. Þær spila góða vörn og eru með góða leikmenn. Þær eru með þrjár landsliðskonur. Þær þurfa að halda áfram að bæta sig fyrir úrslitakeppnina og síðan fá þær lið í undanúrslitum sem hefur verið að hvíla, þannig það eru möguleikar fyrir þær að gera eitthvað," sagði Ásbjörn Friðriksson.

Hægt er að sjá umfjöllunina í Handboltahöllinni hér að neðan.

20. umferðin í Olís-deild kvenna fer fram í kvöld klukkan 18:00 en ÍR heimsækir ÍBV í kvöld.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top