Dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramót kvenna skipað leikmönnum 20 ára og yngri sem fram fer í Jinzhong í Kína í sumar. Mótið fer fram dagana 24. júní til 5. júlí en þjálfari íslenska landsliðsins er Halldór Stefán Haraldsson. Ekki hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hans en Hildigunnur Einarsdóttir var honum til aðstoðar í síðasta verkefni og Þórey Rósa Stefánsdóttir í verkefninu á undan. Ísland verður í riðli með Svartfjallalandi, Tékklandi og Bandaríkjunum en Svartfjallaland var í efsta styrkleikaflokki og Tékklandi í öðrum styrkleika. Ísland var í þriðja styrkleika og Bandaríkin í þeim neðsta. Tvö efstu lið riðilsins komast í 16-liða úrslit en tvö þau neðri leika um sæti 17 til 32 eða um hinn svokallaða Forsetabikar. Er þetta annað heimsmeistaramót þennan aldursflokks sem fram fer í Kína en HM U18 fór einnig fram í Kína fyrir tveimur árum en um er að ræða stelpur sem fæddar eru 2006 eða seinna. Allir riðlar mótsins má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.