Landsliðsmaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson leikmaður MT Melsungen í þýsku deildinni sagði í viðtali við Handkastið á dögunum að hann myndi yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Skýrist á næstu dögum hvar Arnar Freyr spilar á næsta tímabili. Arnar Freyr sagði í viðtalinu við Handkastið að hann gerði ráð fyrir því að spila áfram í þýsku úrvalsdeildinni. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Arnar Freyr verið í viðræðum við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar. Það sem flækir málin fyrir Arnar Frey er að Wetzlar er í mikilli fallbaráttu og samkvæmt heimildum Handkastsins verður ekkert úr vistaskiptum Arnars til Wetzlar nema að félagið haldi sér uppi í sterkustu deild í heimi. Wetzlar er í næsta neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 10 stig þegar níu umferðir eru eftir, tveimur stigum á eftir Bergischer og Minden en tvö lið falla úr úrvalsdeildinni. Leipzig er á botninum með níu stig. Af þeim fjórum liðum sem eru í mikilli fallbaráttu á Wetzlar bara eftir að mæta Bergischer það sem eftir er af tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.