Er Arnar Freyr á leið til Rúnars?
Sævar Jónasson

Landsliðsmaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson leikmaður MT Melsungen í þýsku deildinni sagði í viðtali við Handkastið á dögunum að hann myndi yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

Skýrist á næstu dögum hvar Arnar Freyr spilar á næsta tímabili.

Arnar Freyr sagði í viðtalinu við Handkastið að hann gerði ráð fyrir því að spila áfram í þýsku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Arnar Freyr verið í viðræðum við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar.

Það sem flækir málin fyrir Arnar Frey er að Wetzlar er í mikilli fallbaráttu og samkvæmt heimildum Handkastsins verður ekkert úr vistaskiptum Arnars til Wetzlar nema að félagið haldi sér uppi í sterkustu deild í heimi.

Wetzlar er í næsta neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 10 stig þegar níu umferðir eru eftir, tveimur stigum á eftir Bergischer og Minden en tvö lið falla úr úrvalsdeildinni. Leipzig er á botninum með níu stig.

Af þeim fjórum liðum sem eru í mikilli fallbaráttu á Wetzlar bara eftir að mæta Bergischer það sem eftir er af tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top