Í kvöld mættust Afturelding og Víkingur í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Myntkaup höllinni í Mosó. Afturelding var mun betri aðilinn allan fyrri hálfleikinn. Þær mættu gríðarlega öflugar til leiks og ætluðu að klára lokaleik tímabilsins af miklum krafti greinilega. Um tíma voru þær komnar 6 mörkum yfir og voru að spila gríðarlega vel á meðan Víkings stelpur voru heillum horfnar. Hálfleikstölur voru 15-12 fyrir Aftureldingu. Í seinni hálfleik tók það Víkings stelpur rúmar 10 mínútur að jafna leikinn. Eftir það var leikurinn hnífjafn. Gríðarlega spenna var í Mosó í dag. En Víkings stelpur sýndu styrk sinn á lokamínútunum og voru aðeins klókari og seigari. Unnu þær leikinn að lokum 23-25. Hjá UMFA var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 13 mörk. Ingibjörg Gróa varði 14 skot. Hjá Víking var Valgerður Elín Snorradóttir markahæst með 6 mörk. Þyrí Erla varði 9 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.