Í dag mættust Grótta og Fram 2 á Nesinu í Grill 66 deild kvenna. Grótta þurfti að vinna sinn leik og treysta á að HK stelpur myndu misstíga sig á móti Fjölni. Leikurinn var jafn fyrstu 5 mínúturnar en síðan var leikurinn einstefna. Grótta tók öll völdin og svoleiðis keyrði yfir lið Fram 2. Hálfleikstölur voru 21-9. Eftir korters leik í seinni hálfleik var staðan orðin 29-12 og Fram 2 löngu búnar að játa sig sigraða. Fór það svo að lokum að lokatölur urðu 42-15. Frábær leikur hjá Gróttu en Fram 2 mættu ofjörlum sínum og voru þær með sérstaklega ungt lið enda aðalliðið hjá þeim líka að spila í dag. Hjá Gróttu var Arndís Áslaug Grímsdóttir markahæst með 6 mörk. Anna Karólína og Andrea vörðu samtals 15 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.