Ljóst hvaða lið mætast í umspili um laust sæti í Olís deild karla
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Eftir sigur Harðar gegn HBH í lokaleik sínum í Grill66-deild karla sem fram fór í Vestmannaeyjum í dag er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum umspils um laust sæti í Olís-deild karla á næstu leiktíð.

Umspilið hefst á föstudagskvöld en HSÍ hefur ekki sett tímasetningar og dagsetningar inn á heimasíðu sína.

Eftir sigur Harðar gegn HBH fór Hörður upp fyrir Fjölni í deildinni og enda í 5.sæti deildarinnar með 24 stig. Fjölnir fékk 23 stig og enduðu í 6.sætinu. Valur 2 og Haukar 2 enduðu í 3. og 4.sæti deildarinnar en taka ekki þátt í umspilinu.

Stjarnan sem endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar mætir því Fjölni á meðan Grótta sem endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar mætir Herði.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top