Norski landsliðsmaðurinn og leikmaður Kolstad yfirgefur norska félagið en hann hefur samið við þýska úrvalsdeildarfélagið, HSV Hamburg og verður þar liðsfélagi Einars Þorsteins Ólafssonar. Martin Hovde hefur leikið með Kolstad síðustu þrjú tímabil en vegna fjárhagsvandræða norska félagsins hefur félagið verið að missa sína bestu leikmenn. Þar á meðal Sigvalda Björn Guðjónsson sem var kynntur sem nýr leikmaður Hannover-Burgdorf í vikunni. Martin Hovde er 24 ára línumaður sem verður 25 ára í desember á þessu ári. Hann lék með norska landsliðinu á Evrópumótinu í janúar en hann gekk í raðir Kolstad frá Haslum sumarið 2023. Hann lék sína fyrstu landsleiki í janúar í aðdraganda Evrópumótsins. Með komu Hovde er Hamburg talið vera búnir að móta leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil en það hefur verið stefna félagsins undanfarin tímabil að sækja unga og efnilega leikmenn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.