Ekkert íslenskt mark í sannfærandi sigri
Frank Hoermann / SVEN SIMON AFP

Íslensku landsliðsstelpurnar í Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni höfðu hægt um sig í níu marka sigri liðsins gegn Oldenburg. Blomberg Lippe vann leikinn 30-21 en liðið var fjórum mörkum yfir í hálfleik 16-12.

Engin af íslensku stelpunum skoruðu í leiknum en Díana Dögg Magnúsdóttir gaf tvær stoðsendingar. Þetta er í fyrsta skipti í vetur sem engin af þremur landsliðskonum Íslands skorar fyrir Blomberg-Lippe í deildarleik. En Auk Díönu leika Elín Rósa Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen með liðinu sem er í 2.sæti deildarinnar.

Dortmund er á toppi deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir en einungis einu stigi munar á liðunum. Liðin mætast hinsvegar í lokaumferðinni og gera má ráð fyrir að úrslitin í deildinni ráðist í þeim leik. Blomberg-Lippe mætir Halle Neustadt í næstu umferð en liðið er í næsta neðsta sæti deildarinnar.

Á sama tíma mætir Dortmund liði Oldenburg áður en lokaumferðin fer síðan fram.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top