Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst eftir tæpar 40 mínútur þegar ÍBV og KA ríða á vaðið í fyrsta leik 8-liða úrslitanna í Vestmannaeyjum. Þetta eru liðin sem enduðu í 4. og 5.sæti deildarinnar og búast má við hörkuleik. Síðar í kvöld fá síðan deildarmeistarar Vals lið HK í heimsókn. Eyjamenn verða án lykilmanna í leiknum í kvöld en hvorki Andri Erlingsson né Hákon Daði Styrmisson eru í leikmannahópi ÍBV í kvöld. Þá er Ísak Rafnsson fjarverandi. Hinrik Hugi Heiðarsson snýr hinsvegar aftur ásamt Petar Jokanovic í markið. Hjá KA þá snýr Norðmaðurinn, Morten Boe Linder aftur í leikmannahóp KA eftir að hafa farið úr axlarlið í deildarleik með KA í febrúar. Bjarni Ófeigur Valdimarsson er einnig í hópnum hjá KA en hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur. Handkastið hefur áður greint frá því:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.