Moldóvinn yfirgefur Þór
Egill Bjarni Friðjónsson

Moldóvinn, Igor Chiseliov verður ekki áfram í herbúðum Þórs í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Jason Orri Geirsson fyrirmaður handknattleiksmála hjá Þór í samtali við Handkastið.

Samningur Igors rennur út í sumar og er það orðið ljóst að Þórsarar ætla ekki að framlengja við hann.

Igor gekk í raðir Þórs í upphafi tímabils eftir að hafa leikið víða um heim undanfarin ár. Hann lék 21 leik með Þór í Olís-deildinni í vetur og skoraði 29 mörk.

Óhætt er að segja að Igor hafi ekki staðið undir þeim væntingum sem Þórsarar höfðu til hans og var hann í vetur í litlu sem engu hlutverki í liðinu. Var það meðal annars rætt í Handkastinu í desember hvort Igor myndi mæta aftur eftir áramót sem hann þó gerði.

Þórsarar sömdu á dögunum við danska leikstjórnandann, Bertram Simonsen fyrir næsta tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top