Þýska stórliðið THW Kiel hefur nú fyllt það skarð sem myndast þegar Magnus Landin yfirgefur félagið eftir tímabilið. Magnus Landin hefur ákveðið að ganga til liðs við Álaborg og skilur eftir sig stórt skarð í vinstra horninu hjá Kiel. Sá sem á að fylla skarð Landin heitir Vincent Büchner, 28 ára Þjóðverji sem gengur í raðir Kiel eftir eins árs dvöl hjá Eisenach. Þar áður lék hann með Hannover-Burgdorf í tíu ár. Büchner segir það hafa verið draumur frá unga aldri að spila fyrir Kiel og að áhugi félagsins hafi kveikt þann draum aftur. Büchner mun ganga til liðs við Kiel sumarið 2026 á tveggja ára samningi. Í Kiel verður hann í samkeppni við Rune Dahmke um vinstri hornamannastöðuna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.