Sænska félagið HF Karlskrona tilkynnti í vikunni á samfélagsmiðlum sínum að FH-ingurinn, Ólafur Andrés Guðmundsson myndi yfirgefa herbúðir félagsins þegar tímabilið klárast í vor. Handkastið hafði samband við Ólaf í kjölfarið og spurðu hann hvort þetta væru endalokin á löngum og líflegum ferli hans á handboltavellinum. ,,Það passar, skórnir eru að fara á hilluna. Skrokkurinn er því miður búinn," sagði Ólafur í samtali við Handkastið. Ólafur gekk í raðir Karlskrona sumarið 2023 en meiðsli hafa haft mikil áhrif á hans feril síðustu ár og hefur hann lítið sem ekkert spilað með félaginu eftir komu sína þangað. ,,Ég hef ekkert spilað á þessu tímabili útaf brjósklosi. Er að klára viðskiptafræði núna og er að leita mér að vinnu. Það verður viðbrigði að vera ekki með klístrið á puttunum alla daga en ég geng sáttur frá borði," sagði Ólafur. Hann gekk í raðir Karlskrona eftir ár hjá Amicitia Zurich í Sviss og þar áður lék hann með Montpellier eitt tímabil. Ólafur hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2010 er hann yfirgaf uppeldisfélag sitt FH og gekk í raðir AG Kaupmannahöfn. ,,Ég geng sáttur frá borði þegar ég hugsa til baka um minn feril. Ég er stoltur af þeim rúmu 15 árum sem ég hef verið atvinnumaður og fengið að spila fyrir frábær félög, unnið titla og tekið þátt í Evrópukeppnum og Meistaradeildinni. Einnig hef ég spilað um 150 landsleiki og farið á fjölmörg stórmót, sem er eitthvað sem ég er mjög stoltur af og tók aldrei sem sjálfsögðum hlut," sagði Ólafur í samtali við Handkastið þegar hann var beðinn um að gera upp ferilinn. ,,Á sama tíma er alltaf hægt að velta fyrir sér „hvað ef“ þegar maður horfir til baka, en það hefur lítið upp á sig. Ég horfi því stoltur á ferilinn og það sem ég hef áorkað. Nú er mig farið að hlakka til að ljúka náminu núna í vor og takast á við nýjar áskoranir í nýju hlutverki." En kom aldrei til greina að enda ferilinn hjá uppeldisfélaginu? ,,Við fjölskyldan erum ótrúlega sátt í Svíþjóð og endum einhvern veginn alltaf hér aftur. En ég er og verð alltaf mikill FH-ingur en það var alltaf frekar ólíklegt að ég hefði endað í FH," sagði Ólafur sem hefur eins og fyrr hefur verið sagt frá glímt við langvarandi meiðsli. ,,Fyrir tímabilið var ég nokkuð viss um að þetta yrði mitt síðasta tímabil, en síðan fékk ég slæmt brjósklos í baki síðasta sumar og hef þess vegna ekkert spilað á þessu tímabili. Ég hef tekið þetta í stuttum skrefum og reynt að komast aftur inn á völlinn, því ég hefði gjarnan viljað kveðja handboltann með nokkrum leikjum á gólfinu," sagði Ólafur sem segir að það hafi því miður ekki gengið nægilega vel. ,,Mér hefur ekki tekist að ná mér nógu góðum til að spila. Í raun hafa síðustu ár verið erfið hvað varðar meiðsli, því ég hef verið mikið inn og út vegna þrálátra vöðvameiðsla. Það gerir þessa ákvörðun auðveldari. Það getur verið krefjandi andlega að finna að skrokkurinn ráði ekki við það sem maður telur sig eiga að geta gert, og því tel ég að þetta sé rétt ákvörðun á þessum tímapunkti," sagði Ólafur að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.