Hrannar hættur með Stjörnuna
Egill Bjarni Friðjónsson

Það voru heldur betur óvænt tíðindi að berast úr Garðabænum en Hrannar Guðmundsson er hættur sem þjálfari liðsins einungis þremur dögum áður en umspilið hefst um laust sæti í Olís-deildinni fyrir næstu leiktíð.

Hrannar lætur af störfum og munu þeir Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson stýra liðinu í þeim leikjum sem eftir eru. Stjarnan mætir Fjölni í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deildinni sem hefst á föstudaginn.

,,Hrannar Guðmundsson hefur lagt mikið af mörkum til liðsins og viljum við þakka honum kærlega fyrir hans framlag og starf undanfarin ár. Jafnframt óskum við honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. Við hlökkum til að sjá liðið taka næstu skref," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni.

Áður hafði verið tilkynnt að þeir Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson myndu taka við liðinu af Hrannari eftir tímabilið en Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar og er því á leið í umspil til að tryggja sæti sitt í deildinni.

Hrannar tók við liði Stjörnunnar í byrjun tímabilsins 2023/2024 og var því á sínu þriðja ári með liðið. Arnari Daða Arnarssyni var sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfari liðsins um áramótin en liðið tapaði öllum leikjum sínum í Olís-deildinni eftir áramót. Alls tapaði liðið ellefu leikjum í röð eða öllum leikjunum í seinni umferð Olís-deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top