Þægilegt hjá Haukum gegn Aftureldingu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haukar tóku á móti Aftureldingu í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum í úrslitakeppni karla á Ásvöllum í kvöld.

Liðin enduðu í þriðja og sjötta sæti deildarinnar og voru Haukar búnir að vera á miklu flugi eftir áramót meðan Afturelding hafði misst flugið eftir góða byrjun á tímabilinu.

Haukar sýndu strax á fyrstu mínútu í kvöld að þeir ætluðu að selja sig dýrt og náðu strax góðu forskoti og var Freyr Aronsson í frábæru formi í kvöld og skoraði meðal annars 6 mörk í fyrri hálfleik.

Afturelding átti fá svör við sterkri vörn Hauka og við virtist ekkert slá Haukana útaf laginu að Adam Bamruk hafi fengið beint rautt spjald um miðbik fyrri hálfleiks. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var 20-12, Haukum í vil.

Afturelding náði ekki að minnka forskotið að neinu náði í síðari hálfleik og er óhætt að segja að Haukar hafi siglt þessum leik þægilega heima og var ekki laust við það að bæði liðin væru komin með hugann við leikinn í Mosfellsbænum næstkomandi mánudag.

Lokatölur á Ásvöllum voru 34-26, fyrir heimamönnum í Haukum og eru þeir komnir í 1-0 í einvíginu gegn Mosfellingum.

Freyr Aronsson var markahæstur í liði Hauka í kvöld með 9 mörk en hjá Aftureldingu voru Ihor Kopyshynskyi og Harri Halldórsson markahæstir með 5 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top