Bergischer með mikilvægan sigur í fallbaráttunni
SVEN SIMON / AFP

Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer unnu lífsnauðsynlegan eins marks sigur á Einari Þorsteini Ólafssyni og félögum í Hamburg á útivelli í kvöld í fyrsta leik 26.umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar.

Lokatölur 35-24 fyrir Bergischer eftir jafna og spennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en undir lok leiks.

Bergischer voru einu marki í hálfleik 18-17 en liðin skiptust á að vera með eins marks forystu út allan leikinn en Bergischer náði í fyrsta skipti þriggja marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 28-31.

Moritz Sauter leikmaður Hamburg var markahæstur með tíu mörk en Soren Steinhaus var markahæstur í liði Bergischer með sjö mörk. Með sigrinum er Bergischer komnir með 14 stig í 15.sætinu, fjórum stigum meira en Wetzlar sem er í fallsæti deildarinnar ásamt Leipzig sem er með níu stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top