Halldór Stefán Haraldsson var í gær ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélag Selfoss. Í tilkynningu frá félaginu kemur eftirfarandi fram. "Halldór hefur starfað mest í kringum handknattleik frá því hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, árið 2010. Hann hefur m.a verið aðalþjálfari hjá Fylki og KA og einnig þjálfað hjá Volda í Noregi. Hann er lærður íþróttafræðingur og einnig er hann að ljúka námi í alþjóðaviðskiptum og verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Framkvæmdastjórn félagsins sá um ráðningarferlið og viðtöl við umsækjendur, sem lauk með ráðningu Halldórs. Framtíðarsýn hans og áhugi á eflingu félagsins, ekki síst innávið, féll vel að framtíðasýn framkvæmdastjórnar og býður hún Halldór velkomin til starfa hjá félaginu og væntir mikils af honum fyrir félagið" Á mynd frá vinstri: Hermann Ólafsson framkvæmdastjórn UMFS, Helgi Sigurður Haraldsson formaður UMFS, Halldór Stefán Haraldsson framkvæmdastjóri UMFS og Brynhildur Jónsdóttir framkvæmdastjórn UMFS.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.