Tók ákvörðun að velja Hörpu sem hann þekkir ágætlega
Kristinn Steinn Traustason

Arnar Pétursson tilkynnti á fimmtudaginn landsliðshóp sinn sem leikur tvo síðustu leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í næsta mánuði.

Íslenska landsliðið mætir Færeyjum í Þórshöfn 8.apríl og fær síðan Portúgal í heimsókn 12.apríl en sá leikur fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Frítt verður á leikinn á Ásvöllum í boði Besta bitans. Hægt að sækja sér miða í gegnum Stubb.is.

Ljóst var að breytingar yrðu á hópnum vegna meiðsla en vinstri hornamaður Volda í Noregi, Dana Björg Guðmundsdóttir er meidd og verður ekkert meira með á þessu tímabili. Það var því við búist að inn kæmi nýr vinstri hornamaður ásamt Rakel Oddnýju Guðmundsdóttur.

Arnar ákvað að velja Hörpu Maríu Friðgeirsdóttur leikmann Fram í Olís-deild kvenna. Arnar þekkir vel til Hörpu endar var hann í þjálfarateymi kvennaliðs Fram á síðustu leiktíð.

,,Við hugsuðum það lengi hvað við vildum gera þar. Við horfðum á þetta út frá varnarleik bæði 6-0 og 5-1 og hraðaupphlaupum og því sem er að gerast inn á vellinum. Á endanum tók ég ákvörðun að velja Hörpu sem ég þekki ágætlega. Hún er mikill íþróttamaður og ég veit að hún á eftir að koma sterk inn í þetta," sagði Arnar í viðtali við Handkastið eftir að hópurinn var tilkynntur.

Erum með leikmenn sem eru að koma til baka úr meiðslum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top