Selfyssingurinn og landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson átti frábæran leik í dag þegar Rhein-Neckar Löwen vann heimasigur á HSG Wetzlar í þýsku Bundesligunni. Lokatölur leiksins voru 41-27 eftir að Löwen hefðu verið 23-15 yfir í hálfleik. Haukur var heldur betur í banastuði því hann skoraði fimmtán mörk og átti einnig átta stoðsendingar. Hann var bæði markahæstur og stoðsendingahæstur á vellinum. Svo sannarlega ótrúleg frammistaða hjá honum. Með sigrinum fór Löwen upp í sjöunda sæti deildarinnar og upp fyrir annað Íslendingalið, Melsungen. Fyrr í dag vann síðan Magdeburg góðan heimasigur á Þýskalandsmeisturunum í Fuchse Berlín 35-33 en staðan í hálfleik var 15-15. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Magdeburg og Ómar Ingi Magnússon þrjú. Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað fyrir Magdeburg. Danski línumaðurinn, Magnus Saugstrup var markahæstur í liði Magdeburg með níu mörk en Mathias Gidsel var markahæstur allra með ellefu mörk. Lasse Andersson skoraði átta mörk fyrir Fuchse Berlín. Eftir sigurinn er Magdeburg nú, átta stigum á undan Fuchse Berlín á toppi deildarinnar með 48 stig en Berlínar-refirnir eru í 3.sætinu með 40 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.