Ómar Ingi, Gísli Þorgeir og Elvar Örn færðust skrefi nær þýska meistaratitlinum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslendingaliðið Magdeburg færðist einu skrefi nær að þýska meistaratitlinum með tveggja marka sigri á Füchse Berlin í kvöld.

Magdeburg sigruðu leikinn 35-33 eftir að jafnt hafi verið í hálfleik 15-15. Fyrir leikinn höfðu liðsmenn Füchse Berlin unnið 9 leiki í röð. Magdeburg er núna með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar en Flensburg er í öðru sæti þegar átta umferðir eru eftir.

Gísli Þorgeir Kristjánsson átti frábæran leik með Magdeburg. Hann skoraði 6 mörk og átti 7 stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon var með þrjú mörk og tvær stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson náði ekki að komast á blað en átti eina stoðsendingu auk þess að standa varnarleikinn vel eins og alltaf.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top