Það birtust slæmar fréttir frá Selfossi í vikunni þegar Handkastið greindi frá því að Carlos Martin Santos væri hættur sem þjálfari liðsins eftir að hafa sagt upp samningi sínum við félagið. Carlos tók við liði Selfoss fyrir síðustu leiktíð og kom liðinu upp í Olís-deildina á sínu fyrsta tímabili. Hann hélt liðinu síðan uppi í deild þeirra bestu á þessu tímabili. Rætt var um málið í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Selfoss eru orðnir þjálfaralausir eftir tíðindi vikunnar þegar Carlos Martin Santos nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum eftir tveggja ára dvöl þar. Hann hefur gert ævintýralega hluti á Selfossi, kom liðinu upp í gegnum Séffa-umspilið og hélt liðinu síðan uppi nokkuð sannfærandi á þessu tímabili. Hann hefur gert ótrúlega hluti hérna á Íslandi, hann fer á Ísafjörð og kemur Hörð upp í Olís-deildina í fyrsta skipti í sögu félagsins. Núna er hann orðaður við Aranås í sænsku B-deildinni," sagði Arnar Daði Arnarsson, þáttastjórnandi Handkastsins. ,,Það er reiðarslag fyrir Selfyssinga að missa hann og ekki hefur hann bara verið að gera frábæra hluti fyrir meistaraflokks liðið heldur er hann einnig gríðarlega mikilvægur í yngri flokka starfinu. Hann er að koma að einhverjum 2-3 yngri flokkum og það verður ekkert auðvelt að fylla hans skarð. Það er ekkert endalaust af þjálfurum á Selfossi," sagði Davíð Már Kristinsson gestur þáttarins. ,,Ég hef ekkert punktað neitt niður en ég held að það verði heillavænlegast fyrir Selfoss að fara í erlendan þjálfara. Það reyndist vel að fá Carlos og Daniel Birkelund hefur gert það vel hjá Þór," bætti Davíð Már við. Stymmi klippari velti fyrir sér hvort Halldór Stefán Haraldsson gæti tekið við liðinu en hann er búsettur á Selfossi og hefur verið viðloðandi starfið á Selfossi á þessu tímabili en samningi hans við KA var sagt upp eftir síðasta tímabil. ,,Einhverjir hafa talað um að Hilmar Guðlaugsson fráfarandi þjálfari kvennaliðs HK taki við kvennaliði Selfoss og Eyþór Lárusson þjálfari kvennaliðs Selfoss gæti tekið við karlaliðinu," sagði Arnar Daði meðal annars en frekar var rætt um þetta mál í upphafi nýjasta þáttar Handkastsins.Hver tekur við?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.