Sameiginleg deild stofnuð á Balkanskaga
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Unnið er að stofnun nýrrar svæðisbundinnar handknattleiksdeildar á Balkanskaga sem á að hefja keppni tímabilið 2026/2027. Þetta kemur fram í nýrri frétt miðilsins Handball Planet. 

Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa handknattleikssambönd nokkurra ríkja á svæðinu þegar hafið samstarf um verkefnið, sem miðar að því að efla þróun handbolta í Balkanskaga og auka samkeppni milli sterkra félaga í löndunum. 

Endanleg ákvörðun um fyrirkomulag deildarinnar liggur þó ekki enn fyrir. Gert er ráð fyrir að hún verði tekin á fundi sem haldinn verður í Skopje í apríl, þar sem helstu atriði – þar á meðal keppnisfyrirkomulag og þátttaka liða – verða ákveðin. 

Fulltrúar félaga verða einnig boðaðir á þann fund til að taka virkan þátt í ákvörðunarferlinu og móta framtíð deildarinnar. Tíu lið taki þátt í deildinni, fjögur félagslið frá Serbíu, fjögur frá Norður-Makedóníu og tvö frá Svartfjallalandi. Stefnt er að keppni bæði í karla- og kvennaflokki og að hún gæti hafist í september

Aðstandendur verkefnisins leggja áherslu á að áfram verði unnið að nánu samstarfi milli landanna til að tryggja að deildin verði mikilvægur vettvangur fyrir framþróun handknattleiks á svæðinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top