Mikið hefur verið rætt og ritað um athyglisvert mál sem kom upp í hálfleik í leik FH og Fram í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í vikunni þegar stuðningsmannasveit Fram var beðin um að færa sig í stúkunni eftir að hafa fært sig í hálfleik. Handkastið hefur meðal annars birt myndband þar sem Einar Andri Einarsson einn af þjálfurum FH-liðsins ræðir við Hlyn Leifsson eftirlitsmann leiksins í aðdraganda þess sem Hlynur gerir athugasemd við staðsetningu stuðningsmannasveitar Fram. Sjáðu þegar Einar Andri kvartaði yfir áhorfendum Fram sem brutu engar reglur. Þá birti Handkastið viðtal við Gísla Frey Valdórsson formann handknattleiksdeildar Fram sem segir þetta undarlegt atvik og í raun út í hött. Þá segir hann þetta vera vanvirðingu við stuðningsmenn Fram. Einar Jónsson þjálfari Fram var í viðtali við Vísi sem birt var í morgun þar sem hann gefur lítið fyrir eftiráskýringar eftirlitsmanns HSÍ, sem bannaði stuðningsmönnum Fram að færa sig í önnur sæti á leik liðsins við FH í Kaplakrika. Hlynur Leifsson var eftirlitsmaður leiksins og neitaði að hefja seinni hálfleikinn fyrr en stuðningsmenn Fram hefðu fært sig á sama stað og þeir voru á, í fyrri hálfleik. Hlynur sagði í samtali við Vísi í gær að stuðningsmennirnir hefðu verið á ólöglegu svæði. Hinsvegar sýna myndbandsupptökur sem Handkastið birti í gærkvöldi að þar fer Hlynur með rangt mál og að stuðningsmannasveit Fram hafi alls ekki verið á ólöglegu svæði. Einar Jónsson hafði þetta meðal annars að segja í samtali við Vísi: ,,Það er bara algjört kjaftæði. Það er hægt að sjá hvar þeir voru. Hann lýgur bara til að komast undan þessu. Það er hægt að sjá þetta á myndbandi, þeir eru víðs fjarri ritaraborðinu þegar þeir eru reknir í burtu. Þeir sitja þarna í fjórðu, fimmtu röð, einhvers staðar við endann á varamannabekk FH. Hann á ekkert að komast upp með að ljúga bara til að redda sér.“ Þá segir Einar að Hlynur hafi gefið Frömurum allt önnur rök fyrir flutningi stuðningsmanna Fram þegar á þessu stóð. Þar hafi Hlynur vitnað í reglur sem eru ekki til að sögn Einars. „Ég veit að það er ólöglegt svæði að vera með trommur við skiptisvæði eða fyrir aftan tímavarðaborð. En rökin sem hann færði fyrir því að þeir mættu ekki vera þarna voru þau að þeir mættu ekki færa sig á milli hálfleika. Það er það sem hann segir og ég bað hann um að sýna mér þær reglur. Hann gat náttúrulega ekki vitnað í neinar reglur.“ Þá bendir Einar einnig á að reglan sem Hlynur vitnaði í eftir á, í skriflegu svari til Vísis, hafi ekki verið gild í þessu tilfelli í Kaplakrika. „Salnum er skipt þannig upp að áhorfendur Fram í gestastúkunni eru fyrir aftan varamannabekki og tímavarðaborð. Svo ertu með FH stuðningsmenn hinumegin. Þar með fellur þessi regla um sjálft sig. Vegna þess að þá eru þeir að mismuna áhorfendum. FH getur verið með trommur og sína stuðningsmannasveit hvar sem er, á meðan stuðningsmönnum Fram eru sett takmörk. Þannig að reglan er ekki einu sinni gild í þessu tilfelli sem hann vitnar í.“ Liðin mætast aftur á mánudag í öðrum leik 8-liða úrslitanna en FH leiðir í einvíginu 1-0 en tvo leiki þarf að vinna til að komast í undanúrslit Íslandsmótsins. Íslandsmeistarar Fram gætu því farið í snemmbúið sumarfrí á mánudaginn. Einar var spurður að því hvort gera mætti ráð fyrir því að stuðningsmenn FH á mánudaginn þyrftu að sitja á sama stað allan leikinn líkt og stuðningsmönnum Fram lentu í, í Kaplakrika. ,,Nei, nei, nei. Við viljum bara hafa sem mesta stemningu og læti. FH á frábæra stuðningsmenn og þeim er velkomið að sitja bara þar sem þeir vilja inni á sínu svæði… Þetta er ekki Norður-Kórea. Mönnum er frjálst að sitja bara þar sem þeir vilja í sinni stúku," sagði Einar Jónsson að lokum í samtali við Vísi. Hér má sjá myndband af atvikinu í hálfleiknum sem rætt og ritað hefur verið um.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.