Haukar tóku á móti KA/Þór í fyrsta leik liðanna í 6-liða úrslitum í úrslitakeppni Olís deildar kvenna á Ásvöllum í dag. Haukar voru án Jóhönnu Margrétar í dag sem var ekki í leikmannahóp Hauka. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust þau á að hafa forystuna. Það var svo undir lok fyrri hálfleiks sem KA/Þór náði að slíta sig aðeins frá heimakonum með frábærri frammistöðu frá Bernadett Leiner í markinu. Susanne Denise Pettersen var svo allt í öllu í sóknarleik þeirra þegar KA/Þór leiddi 11-13 í hálfleik. Það hefur verið farið vel yfir málin hjá Haukum í hálfleik því þær komu grimmar til leiks í síðari hálfleik og voru komið með frumkvæðið í leiknum eftir einungis nokkrar mínútur. Elísa Helga Sigurðardóttir kom inn í markið hjá Haukum í hálfleik og var frábær en hún varði alls 9 skot í síðari hálfleik og endaði leikinn með 43% markvörslu. KA/Þór reyndi að minnka muninn undir restina en mátti sín lítils og endaði leikurinn með þriggja marka sigri Hauka, 27-24. Embla Steindórsdóttir var markahæst hjá Haukum með 9 mörk en hjá KA/Þór var Susanne Denise Pettersen markahæst með 8 mörk en það dró aðeins af henni í síðari hálfleik og munaði um minna fyrir KA/Þór.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.