Hann er ekki að fara koma heim fyrir eitthvað klink
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Á dögunum greindi Handkastið frá því að samkvæmt heimildum Handkastsins væri Tumi Steinn Rúnarsson á leið frá austurríska liðinu, Alpla Hard í sumar. Var hann meðal annars orðaður við heimkomu og var KA nefnt til sögunnar.

Rætt var um Tuma Stein í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins en Tumi Steinn er uppalinn hjá KR og Val en lék einnig með Aftureldingu í Olís-deild karla.

,,Það væri athyglisvert ef hann kæmi heim en fyrir hans hönd væri ég til í að hann yrði lengur úti og fengi eitthvað í Sviss, Austuríki eða Þýsku B-deildinni til dæmis. Hann er bara 26 ára en að sjálfsögðu væri frábært að fá hann í íslensku deildina. Tumi er ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður, ég þekki það reyndar ekki hvort hann sé byrjaður að spila vörn en það væri svo sannarlega gaman að sjá hann í Olís-deildinni," sagði Davíð Már Kristinsson gestur þáttarins meðal annars.

,,Ef menn eru í litlum hlutverkum úti þá vil ég miklu frekar hafa þá hérna heima og styrkja deildina og gera hana betri. Þó að það sé mjög sexy að vera í atvinnumennsku í Austurríki þá held ég að það kitli alltaf að koma heim og ég held að KA sé ekkert að borga illa fyrir góða bita. Persónulega væri ég til í að fá hann heim,” bætti Stymmi við áður en Davíð tók aftur til máls.

,,Það er nokkuð ljóst að hann er ekki að fara koma heim fyrir eitthvað klink."

,,Ef hann ætlar að fá eitthvað greitt, þá fer hann í KA, í hlýjan faðm norðanmanna," sagði Stymmi klippari.

Tumi Steinn sem er uppalinn hjá Val lék einnig um tíma með Aftureldingu gekk í raðir Coburg í þýsku B-deildinni í janúar 2022 þegar þýska félagið keypti hann frá Val. Tumi lék eitt og hálft tímabil með Coburg áður en hann gekk í raðir Alpla Hard í Austurríki.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top