Stymmi Spáir í leiki dagsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Úrslitakeppni karla

KA - ÍBV (Sunnudag 17:00) / Sigurvegari: ÍBV (Staðan í einvíginu er 1-0)

KA gerði frábæra ferð til Vestmannaeyja á miðvikudaginn og unnu eftir tvíframlengdan leik. ÍBV eru því komnir með bakið upp við vegg og verða sendir í sumarfrí ef þeir vinna ekki á Akureyri í dag. Fréttir herma að Hákon Daði gæti verið kominn aftur inn í hópinn hjá þeim og það munar um það. Ég held að ÍBV bíti í skjaldarrendur og vinni leikinn í dag og tryggi sér oddaleik. Coolbet býður upp á stuðul 2.24 í sigur á ÍBV en ég mæli með að tryggja sig fyrir jafnteflinu og taka "Jafntefli ógildir veðmál" á stuðlinum 2.00.

HK - Valur (Sunnudag 18:00) / Sigurvegari: Valur (Staðan í einvíginu er 0-1)

Óvænt er þetta eitt mest umtalaða einvígi 8 liða úrslitanna eftir fyrsta leik liðanna þar sem dómarar leiksins voru í aðalhlutverki. HK spilaði þann leik nánast fullkomlega en máttu sætta sig við tap eftir framlengdan leik. Því miður held ég að sá leikur hafi tekið of mikill toll af HK liðinu og Valsmenn fari upp í Kór í kvöld og vinni þennan leik nokkuð örugglega og fljúgi í undanúrslit.

Umspil Karla

Grótta - Hörður (Sunnudag 16:30) / Sigurvegari: Grótta (Staðan í einvíginu er 0-0)

Leikur sem átti að fara fram á föstudaginn en Harðverjar komust ekki í bæinn sökum ófærðar. Ég ætla því að endurnýta spánna síðan á föstudaginn. Grill 66 deildar slagur þessa umspils. Liðin sem enduðu í öðru og þriðja sæti deildarinnar að mætast á Seltjarnarnesi. Grótta vann þá á heimavelli í fyrsta leik tímabilsins 37-31 en liðin gerðu svo jafntefli fyrir Vestan 32-32 í nóvember. Það er því óhætt að segja að við megum búast við spennandi einvígi en ég tel að Grótta muni eiga fyrsta höggið og komast í 1-0 með sigri í kvöld.

Umspil kvenna

Grótta - Víkingur (Sunnudag 14:00) / Sigurvegari: Grótta (Staðan í einvíginu er 0-0)

Grótta var hársbreidd frá því að fara upp en tapaði óvænt gegn FH í lokaumferðum Grill 66 deildarinnar. Víkingar hafa verið hægt og rólega að byggja upp kvennadeildina sína aftur undanfarin ár og eru orðnar stabílt Grill 66 deildar lið. Ég tel að Grótta verði aðeins of sterkar í dag og vinni í hörkuleik.

Stjarnan - FH (Sunnudag 16:30) / Sigurvegari: Stjarnan (Staðan í einvíginu er 0-0)

Stjarnan tryggði sér í umspilið á ótrúlegan hátt með að ná jafntefli gegn Haukum á síðustu sekúndum. FH er að koma inn í umspilið sem fjórða efsta liðið í Grill 66 sem hefur rétt á því að taka þátt í umspilinu. Ég reikna með þægilegum leik hjá Stjörunni en til þess að FH eigi að eiga möguleika gegn Stjörnunni verður markmaður þeirra Szonja Szöke að eiga stórleik. Það má heldur ekki gleymast að FH sló Stjörnuna út í Powerade bikarnum fyrr í vetur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top