

Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals sneri loks til baka eftir langa fjarveru vegna meiðsla í fyrsta leik Vals og KA í undanúrslitum Íslandsmótsins á mánudagskvöldið. Valur vann leikinn með átján mörkum, 39-21 og leiðir því 1-0 í einvíginu. Liðin mætast í leik tvö fyrir norðan í kvöld klukkan 18:00. Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals var spurður út í mikilvægi þess að fá Dag Árna aftur inn í liðið í viðtali við Handkastið eftir sigurinn á mánudaginn. ,,Það er gríðarlega mikilvægt. Þetta er gríðarlega efnilegur leikmaður sem hefur átt í vandræðum með erfið meiðsli og hefur ekkert spilað síðan í desember. Við erum að reyna koma honum inn í þetta á skynsamlegan hátt, hægt og rólega. Hann fékk 15 mínútur í dag og gerði það mjög vel. Vonandi eykst spilatíminn hans hægt og rólega," sagði Ágúst í viðtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.